Thomas Møller Olsen, grænlenskur karlmaður sem setið hefur í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur, hefur verið ákærður fyrir manndráp og stórfellt fíkniefnalagabrot. Var hann jafnframt úrskurðaður í fjögurra vikna langt gæsluvarðahald fyrir Héraðsdómi Reykjaness upp úr klukkan þrjú í dag.
Þetta staðfestir Kolbrún Benedtiksdóttir, varahéraðssaksóknari, í samtali við mbl.is Maðurinn sem er grunaður um morðið hefur setið í gæsluvarðhaldi í 10 vikur.
Maðurinn er ákærður samkvæmt 211. og 173. grein almennra hegningarlaga. Er hann því ákærður fyrir að hafa myrt Birnu af ásetningi auk þess að hafa staðið í smygli á fíkniefnum.
211. gr. Hver, sem sviptir annan mann lífi, skal sæta fangelsi, ekki skemur en 5 ár, eða ævilangt.
173. gr. Hafi maður á boðstólum eða vinni að því að útbreiða sem læknislyf eða varnarmeðul við sjúkdómum muni, sem hann veit, að ekki eru til þess hæfir, og að notkun þeirra í þessu skyni er hættuleg lífi manna eða heilbrigði, þá varðar það fangelsi allt að 6 árum …
Sé brot framið af gáleysi, varðar það sektum eða [fangelsi allt að 1 ári].
Birna hvarf 14. janúar. Hún sást síðast á eftirlitsmyndavél í miðborg Reykjavíkur. Sjónir lögreglu beindust fljótlega að skipverjum á grænlenska togaranum Polar Nanoq og voru tveir þeirra handteknir um borð í skipinu 17. janúar. Birna fannst látin 21. janúar. Hún var tvítug að aldri.
Öðrum manninum var sleppt úr haldi og hélt hann til Grænlands.