Þrefaldur pottur næst

Enginn var með allar aðaltölur réttar að þessu sinni í laugardagslottóinu og verður því þrefaldur pottur að viku liðinni. Fyrsti vinningur kvöldsins var tæpar 15 milljónir en stefnir í að verða um 23 næsta laugardag.

Tveir voru með 2. vinning, fjórar réttar tölur og bónustölu, og hljóta tæplega 180.000 krónur hvor. Miðarnir voru keyptir á N1 Bíldshöfða og Snælandi, Núpalind í Kópavogi.

Lottótölur kvöldsins voru: 12, 19, 20, 30 og 31. Bónustalan var 14.

Enginn var heldur með allar Jóker-tölur réttar í réttri röð. Tveir voru með 2. vinning, eða fjórar réttar tölur í réttri röð, og hljóta 100.000 krónur í sinn hlut. Annar miðanna var í áskrift en hinn var keyptur í Hagkaup á Akureyri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert