Hæstiréttur mun fjalla um hugsanlegt vanhæfi héraðsdómara í Stím-málinu vegna tengsla hans við Glitnismann sem héraðssaksóknari hafði til rannsóknar. Dómarinn, Sigríður Hjaltested, var einn þriggja héraðsdómara sem dæmdu í málinu árið 2015.
Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.
Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir umboðssvik. Jóhannes Baldursson, sem var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis, var dæmdur í 2 ára fangelsi, einnig fyrir umboðssvik. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi bankastjóri Saga Capital, var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir hlutdeild að umboðssvikum. Stím-málið verður tekið fyrir í Hæstarétti í næsta mánuði, en samkvæmt dagskrá réttarins verður það flutt 22. maí.
Í frétt RÚV kom fram að sé Sigríður vanhæf verði Stím-málið þriðja hrunmálið sem þurfi að endurtaka vegna vanhæfis dómara.
Sigríður lýsti sig vanhæfa í öðru máli tengdu Glitni skömmu eftir að dómur í Stím-málinu féll. Í yfirlýsingu hennar þar að lútandi, sem birt er á vef RÚV, kom fram að meðal gagna þess máls væru gögn sem tengdust fyrrverandi eiginmanni hennar og barnsföður sem starfaði hjá Glitni. Upplýsti Sigríður ennfremur að maðurinn hefði stöðu sakbornings í máli sem var til meðferðar hjá héraðssaksóknara.
Verjendur hinna dæmdu í Stím-málinu hafa farið fram á að dómurinn verði felldur úr gildi vegna meints vanhæfis Sigríðar.
Ítarleg frétt um málið á vef RÚV.