Farþegar taki rútu eða láti aka sér

Langtímastæðin við Leifsstöð eru yfirfull í dag.
Langtímastæðin við Leifsstöð eru yfirfull í dag. mbl.is/Hilmar Bragi

Langtímastæðin við Keflavíkurflugvöll eru orðin full samkvæmt upplýsingum frá Isavia og er farþegum, sem eru á leið til útlanda og hafa hugsað sér að leggja bifreiðum sínum í stæðin, því ráðlagt að taka rútu, strætisvagn eða láta aka sér á flugvöllinn.

„Starfsmenn Isavia hafa undanfarna daga unnið að því að flytja bíla af bílastæðunum á önnur svæði og hefur meðal annars verið tekinn undir það hluti af rútustæðum við flugvöllinn. Nú hafa yfir 600 bílar verið fluttir og ekki er meira pláss á þeim svæðum sem gert var ráð fyrir að notast við ef þessi staða kæmi upp,“ segir í fréttatilkynningu.

Enn fremur segir að um sé að ræða mun meiri nýtingu en gert hafi verið ráð fyrir yfir páskana. Þannig hafi á síðasta ári verið rétt rúmlega tvö þúsund bifreiðar í langtímastæðum yfir páskana en nú séu þær um þrjú þúsund talsins og því ljóst að aukningin sé gríðarleg. Bílastæðin hafi verið stækkuð síðasta sumar og 350 stæðum bætt við.

„Bílastæðin eru því nú 2.350 talsins og alla jafna er um 43% nýting á þeim. Nú yfir páskana eru Íslendingar mun meira á faraldsfæti en gert var ráð fyrir í áætlunum og því hefur þessi staða komið upp. Ljóst að hefja þarf vinnu við að stækka bílastæðin enn frekar svo þau ráði við mesta álagstíma ársins, sem jafnan eru páskarnir. Isavia vill biðjast afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda flugfarþegum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert