Fjórir menn voru handteknir í íbúð á höfuðborgarsvæðinu nú rétt fyrir klukkan 19 í tengslum við rannsókn á vopnuðu ráni í Garðabæ fyrr í dag. Í íbúðinni fundust fíkniefni sem og skotvopn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Eins og greint var frá fyrr í kvöld fékk lögreglan tilkynningu rétt fyrir klukkan þrjú í dag um að tveir menn hefðu framið vopnað rán á bílastæði í Kauptúni Garðabæ.
Í tilkynningunni kom fram að mennirnir hefðu verið vopnaðir skotvopni. Lögreglan, ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra, brá skjótt við og meðal annars vopnaðist hluti lögregluliðsins vegna atviksins.