Einstaklingnum sem er undir lögaldri og var í haldi lögreglu í tengslum við rannsókn á hnífstungu og fíkniefnamáli hefur verið sleppt úr haldi. Hann var handtekinn í gær og yfirheyrður í morgun í viðurvist fulltrúa frá barnaverndarnefnd en ekki þótti ástæða til að fara fram á gæsluvarðhald.
„Hann er viðriðinn málið ennþá en við töldum ekki ástæðu til að halda honum lengur. Hans þáttur telst nokkuð ljós,“ segir Guðmundur St. Svanlaugsson rannsóknarlögreglumaður.
Áður hefur komið fram að einstaklingarnir fimm sem voru handteknir séu allir Íslendingar sem fæddust á árunum 1990 til 1999 og að einn af þeim sé enn undir lögaldri. Allir hafa þeir áður komið við sögu hjá lögreglu.
Búið er að úrskurða tvo karla og eina konu í gæsluvarðhald til föstudags en lögregla á eftir að ákveða hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir fjórða manninum. Lögreglu barst tilkynning um tvö leytið á föstudaginn langa um að maður hefði verið stunginn með hníf tvívegis í lærið í skóginum eftir að ósætti og átök brutust út. Fórnarlambið var flutt á sjúkrahús en er ekki lengur í lífshættu.