Skotvopn notuð í ráni í Kauptúni

Kauptún í Garðabæ.
Kauptún í Garðabæ. Kort/Map.is

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu rétt fyrir klukkan þrjú í dag um að tveir menn hefðu framið vopnað rán á bílastæði í Kauptúni Garðabæ.

Í tilkynningunni kom fram að mennirnir hefðu verið vopnaðir skotvopni. Lögreglan, ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra, brá skjótt við og meðal annars vopnaðist hluti lögregluliðsins vegna atviksins. Rannsókn málsins er í fullum gangi og er tveggja manna leitað.

Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögreglu gegnum netfangið abending@lrh.is eða einkaskilaboð á fésbókarsíðu embættisins.

Lögreglan leitar tveggja manna.
Lögreglan leitar tveggja manna. mbl.is/Júlíus
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert