Rúta út af á Öxnadalsheiði

Öxnadalsheiði er ófær. Mynd úr safni, Hraundrangar í Öxnadal.
Öxnadalsheiði er ófær. Mynd úr safni, Hraundrangar í Öxnadal. mbl.is/Gúna

Rúta með 17 farþegum fór út af veg­in­um á Öxna­dals­heiði. Björg­un­ar­sveit­in á Ak­ur­eyri var kölluð út um klukk­an hálfell­efu til að ferja farþeg­ana úr rút­unni yfir í aðra. Aðstæður eru mjög erfiðar, bál­hvasst, lítið skyggni og heiðin er ófær vegna veðurs.   

Illa stætt er á heiðinni og þurfa tveir björg­un­ar­sveit­ar­menn að fylgja hverj­um farþega yfir í rút­una til að koma þeim til byggða. Eng­in slys eru á fólki, að sögn Jónas­ar Guðmund­son­ar hjá Slysa­varn­a­fé­lag­inu Lands­björg.  

Um 15 til 20 björg­un­ar­sveit­ar­menn á þrem­ur bíl­um fóru í út­kallið.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert