Einhvers konar reyksprengju var kastað inn í anddyri Bónuss í Skeifunni. Einn dælubíll frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var sendur á vettvang til að reykræsta um klukkan korter fyrir eitt.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn var reykurinn að mestu farinn og búið að lofta út úr versluninni. Slökkviliðið þurfti því ekkert að aðhafast.
Enginn í versluninni kenndi sér meins, að sögn slökkviliðsins, sem segir að um reyksprengju hafi verið að ræða eða eitthvað sem framkallar reyk.
Lögreglan fer með rannsókn málsins.