Keflavíkurflugvöllur er löngu sprunginn og þjónustar flugstöðin ferðamenn illa. Sæti eru alltof fá fyrir brottfararfarþega og skipulagið slæmt. Þetta er mat ferðabloggara sem skrifar um reynslu sína af flugvellinum á vef Seattle Times. Vísar hann einnig til skrifa annarra Bandaríkjamanna á ferðasíðum á borð við TripAdvisor sem eru á sömu leið.
Brian J. Cantwell millilenti fyrr í mánuðinum á Keflavíkurflugvelli ásamt fjölskyldu sinni en þau voru á heimleið frá Skotlandi til Seattle. Segir hann brosin á andlitum fjölskyldumeðlimanna fljótt hafa þurrkast af andlitum þeirra eftir viku í Skotlandi þegar þau blönduðust mannhafinu í Keflavík. Þar hafi 15 flug verið á leið til Ameríku á sama hálftímanum og óskipulag verið einkennandi á vellinum.
Vísar hann, eins og segir að framan, til skrifa samlanda sinna af upplifun sinni aðra daga á flugvellinum. Annar gagnrýnir þar tímann sem það tók flugvélina að fá flugvélastæði við flughöfnina þegar til Íslands var komið, og á leiðinni til baka hafi ekki verið hægt að fá sæti við brottfararhliðið. „Það sátu allir á gólfinu,“ skrifar sá.
Annar segir að röðin af fólki sem var á leið til Bandaríkjanna frá Íslandi hafi verið óskipulagt klúður. „Flugið okkar fór hálftíma of seint í loftið,“ skrifar sá, en hann átti flug 16. apríl síðastliðinn.
Cantwell segir að sér hafi liðið eins og í ódýru spilavíti á flugvellinum þar sem sígarettureykurinn frá reykingasvæðinu hafi borist inn í flugstöðina í hvert skipti sem hurðin að reykingasvæðinu opnaðist.