Fjörutíu prósent nemenda við Grunnskóla Fjallabyggðar mættu ekki í skólann í dag, en af 205 nemendum eru 122 mættir samkvæmt upplýsingum frá skólanum.
Á Ólafsfirði eru 34 mættir af 91 nemanda, en 88 á Siglufirði af 114. Hluti forfallanna mun eiga sér eðlilegar skýringar, en þau eru þó meiri en venjulegt getur talist.
Þessu valda mótmæli foreldra barna í þeim hluta grunnskólans sem starfræktur er á Ólafsfirði. Halda þeir börnum sínum heima til að mótmæla þeirri ákvörðun sveitarstjórnarinnar að færa 1.-5. bekk yfir til Siglufjarðar næsta haust, á meðan kennsla nemenda í 6. til 10. bekk mun fara fram á Ólafsfirði.
Börnin munu þurfa að ferðast með rútu í 17 km leið eða um 15 til 20 mínútur.
Skiptingunni er þannig háttað í dag að kennsla í 1.-4. bekk fer fram á báðum stöðum, þar sem tveimur samliggjandi árgöngum er kennt saman í senn, í svokölluðum samkennslubekkjum. 5.-7. bekkur er þá á Ólafsfirði en 8.-10. bekkur á Siglufirði.
„Okkur finnst ekki gott að börnin geti ekki sótt skóla í sínum kjarna. Þrátt fyrir að þetta er sameiginlegt sveitarfélag þá er grunnskólinn hjarta í hverju bæjarfélagi. Þegar maður elst upp við það að geta hlaupið út í skóla þá finnst manni þetta vera orðinn langur ferðatími,“ sagði Hildur Gyða Ríkharðsdóttir, ein þeirra sem stendur að mótmælunum, í samtali við mbl.is í gær.