„Neikvæðni eykst, ímynd og orðspor versnar. Þetta er leiðin sem stjórnvöld vilja fara,“ sagði Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, í Silfrinu í Ríkisútvarpinu í dag. Hún og Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra tókust þar á um áformaðar breytingar á virðisaukaskatti á ferðaþjónustu.
Samtök ferðaþjónustunnar gera skýlausa kröfu um að áformaðar breytingar verði að fullu dregnar til baka. Helga ítrekaði að álögurnar væru langt yfir meðaltali samanburðarþjóða sem er um 11%. Á Íslandi verður virðisaukaskatturinn 24% frá 1. júlí 2018 til 1. janúar 2019 en lækkar þá í 22,5% þegar neðra þrepið lækkar almennt.
Helga benti á að samhliða breytingunum hefði ekkert verið kynnt um aukið fé til uppbyggingar. „Þetta getur haft alvarlegar afleiðingar,“ sagði hún.
Benedikt benti á að greinin hefði ekki verið sérstaklega stór fyrir nokkrum árum en hefði vaxið gríðarlega eftir eldgosin í Eyjafjallajökli og Holuhrauni. „Við skulum ekki gleyma því að þessi mikla aukning og hraði vöxtur hefur haft mikil áhrif á hagkerfið,“ sagði Benedikt og bætti við að áform stjórnvalda væru meðvituð efnahagsaðgerð til að dempa vöxtinn.
Helga sagði rök fjármálaráðherra ekki halda vatni og skattahækkanir séu ekki stýritæki til að dempa vöxt greinarinnar. „Við teljum miklu betri stjórntæki til þess, ef það er horft út frá vaxtaþætti. Þegar fjármálaáætlun var kynnt átti þetta ekki að vera vegna fjölda ferðamanna og því hefur orðið 180 gráðu snúningur hjá stjórnvöldum,“ sagði Helga en áður hafði hún kvartað yfir því að ekkert samráð hefði verið haft við samtökin vegna fyrirhugaðra hækkana.
Benedikt sagðist hafa fengið pósta frá fólki innan ferðaþjónustunnar sem skildi áætlanir stjórnvalda. Verið væri að draga almennt úr ívilnunum og verið væri að setja almannahagsmuni framar sérhagsmunum.
„Þetta veikir minni byggðarlög og landsbyggðina. Það er engin stefna og engin sýn varðandi mikilvægustu atvinnugrein landsins,“ sagði Helga.