Reykjavíkurborg hefur ákveðið að veita landflótta rithöfundi frá Bangladesh skjólborg þar sem honum er tryggður öruggur dvalarstaður og efnahagslegt öryggi. Þetta er þriðji rithöfundurinn sem Reykjavíkurborg tekur á móti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Reykjavík gerðist aðili að ICORN (International Cities of Refuge Network) árið 2010. ICORN eru samtök borga víðs vegar um heim sem hafa gerst skjólborgir rithöfunda sem ekki er gert kleift að búa í heimalandi sínu. Borgirnar leggja með því móti sitt af mörkum til þess að stuðla að tjáningarfrelsi einstaklingsins.
Rithöfundurinn frá Bangladesh heitir Ana Naila Zahin, bloggari og aðgerðarsinni, fædd árið 1995. Hún hefur verið virk í skrifum á bloggsíðum og í fjölmiðlum í heimalandi sínu.
Árið 2013 tók hún virkan þátt í Shahbag-mótmælunum í Bangladesh ásamt þúsundum annarra en mótmælin sneru að ákvörðun stjórnvalda um að dæma til dauða aðila sem tekið hafði þátt í vopnaðri baráttu gegn stjórnvöldum árið 1971 (Bangladesh Liberation War), að því er kemur fram í tilkynningunni.
Í skrifum sínum fjallar Ana m.a. um kynjajafnrétti, femínisma, trúleysi og stjórnmál. Hún var neydd til að hætta háskólanámi og varð að fara í felur um mitt ár 2016 þar sem öryggi hennar var ógnað. Frá árinu 2016 hafa fimm félagar hennar verið drepnir og stjórnvöld hafa ekki getað veitt Önu nægilega vernd.
Ana óskar eftir að hefja háskólanám hérlendis í haust.
Mannréttindaskrifstofa mun halda utan um verkefnið líkt og áður ásamt starfshópi skipuðum af borgarstjóra í júní 2014.