Yfir helmingur af útflutningstekjum Íslendinga árið 2016 var í bandaríkjadölum. Af heildarútflutningstekjum Íslands var bandaríkjadalur með 57,5% hlutdeild.
Evrópulöndin voru samt sem áður langstærstu viðskiptalönd Íslands á árinu en 82,4% af öllum vöruútflutningi Íslendinga fóru til landa í Evrópu. Þar af fóru 72,3% útfluttra vara til landa innan ESB. Þetta kemur fram í skýrslu utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál, sem um er fjallað ítarlega í Morgunblaðinu í dag.
Heildarverðmæti útfluttrar vöru og þjónustu á árinu var 1.186 milljarðar króna og nam verðmæti innfluttrar vöru og þjónustu tæpum 1.035 milljörðum króna. Viðskiptajöfnuður Íslands var því hagstæður um 151,7 milljarða á árinu. Af útfluttum vörum til ESB fara 11,3% þeirra til Bretlands.
Samkvæmt skýrslunni hefur utanríkisráðuneytið væntingar til þess að hægt sé að semja um enn betri markaðsaðgang fyrir íslenskan útflutning að loknu útgönguferli Breta úr ESB.