Vilborg Arna Gissurardóttir bíður þess enn að geta sætt færis að reyna að komast á topp Everest. „Það eru nokkrir dagar síðan ég kom niður úr aðlöguninni og ég er núna að bíða færis til að reyna við tindinn,“ segir Vilborg Arna í samtali við mbl.is, en hún gerir nú þriðju tilraun sína til að komast á tind þessa hæsta fjalls jarðar.
Vilborg Arna er búin að ganga upp í þriðju búðir, ásamt leiðsögumanni sínum sjerpanum Tenjee, og fara upp í 7.000 metra hæð til að aðlagast þunnu loftinu. Vont veður gerði þegar þau voru komin upp í búðir eitt og urðu þau því að bíða þar í tvær nætur og sæta færis að veður batnaði á ný.
Í færslu á Instagram minnist Vilborg Arna þess að hún hafi verið í þessum búðum fyrir tveimur árum, þegar gríðarmikill jarðskjálfti upp á 7,8 stig varð í Nepal, sem kostaði þúsundir manna lífið.
„Að þessu sinni var þetta ekki jafn skelfilegt og Tenjee og ég áttum góðan dag með mikilli tedrykkju,“ segir í fæslunni.
Spurð hvernig tilfinning það sé að vera reyna við fjallið í þriðja sinn eftir það sem á undan er gengið segir hún: „Maður verður alltaf auðvitað pínu meyr á ákveðnum stundum en það fylgir því að vera hér og að takast á við þessa áskorun.“
Ekki er enn ljóst hvenær hún muni reyna við topp Everest í þessari ferð. „Það á enn eftir að fixa línurnar upp á toppinn og því ekki hægt að gera neinar áætlanir enn,“ útskýrir hún.
„Þegar fjallið verður orðið klárt, þá byggist þetta á því að fá veðurglugga og að maður sé líkamlega klár, þannig að núna erum við að hvíla okkur fyrir lokaátökin.“ Þegar veðurglugginn opnast tekur fjóra daga að fara úr grunnbúðunum.
Vilborg Arna kveðst reyna að fara í gönguferðir og halda sér við og nota hugmyndafræðina „active rest“ eða virka hvíld á meðan hún bíður færis.
Aðstæður á fjallinu nú eru ágætar, að sögn Vilborgar Örnu. „En það á þó eftir að reyna á efsta hluta þess ennþá,“ bætir hún við. Washington Post greindi frá því í gær að mun fleiri væru að reyna að komast á tind Everest þetta árið en vanalega og hefðu nepölsk ferðamálayfirvöld veitt 371 manns leyfi til að reyna við tindinn í ár, sem er tæplega hundrað fleiri en í fyrra.
„Það voru gefin út fleiri leyfi en áður, sem stafar af því að þeir sem voru hér 2014 eða 2015 eru að nýta sín leyfi,“ útskýrir Vilborg Arna. „Þannig að þetta er mikið til fólk sem hefur verið áður og ég þekki t.d þó nokkra frá fyrri árum.“
Hún segir fjöldann þó dreifast ágætlega um svæðið og því sé ekki vandamál hversu margir séu á svæðinu. „En það getur þó vissulega orðið áhyggjuefni ef veðurglugginn verður knappur.“