Nýbúinn varmasmiður hefur gert vart við sig síðustu daga og hafa Erling Ólafssyni, skordýrafræðingi, borist margar fyrirspurnir og tilkynningar um þessa myndarlegu bjöllu undanfarið.
Á pödduvefnum segir Erling að við fyrstu kynni lítist fólki oft ekki á blikuna því varmasmiður er mun stærri padda en fólk á að venjast eða um 22 millimetrar á lengd.
Varmasmiður skaut fyrst upp kolli hér undir aldamótin síðustu og hefur hægt og bítandi verið að bæta í einkum á höfuðborgarsvæðinu. Heitasta svæðið í fyrra og áfram þetta vorið eru suðurhlíðarnar í austurbæ Kópavogs, segir Erling á fésbókarsíðunni Heimur smádýranna.