Drengur á þrettánda aldursári lést í umferðarslysi á Eyjafjarðarbraut vestari, skammt sunnan við Hrafnagil, í gær. Hann var ökumaður lítils bifhjóls sem lenti í árekstri við jeppabifreið. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri.
Rannsókn lögreglu á Norðurlandi eystra og Rannsóknarnefndar samgönguslysa stendur yfir á tildrögum slyssins og því ekki hægt að veita frekari upplýsingar á þessu stigi.