Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, hefur birt MODIS-mynd af Íslandi og sýnir hún meðal annars hve snjólétt er nú um að litast á hálendinu.
Vetur konungur hefur þó enn ekki sleppt taki sínu á Öskjuvatni og Hágöngulóni, sem eru ísilögð, og Tröllaskaga, sem einnig er áberandi vetrarlegur.