Vissi ekki af 46,5 milljóna vinningi

Fjölskyldumaður á höfuðborgarsvæðinu vann 46,5 milljónir í Lottó, en þegar starfsmenn Íslenskrar getspár höfðu samband við hann á mánudaginn vissi hann ekki af vinningnum. Hafði hann keypt miðann á vef Lottó og ekki verið búinn að athuga með vinningstölurnar.

Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að gleðin hafi verið mikil, enda eigi maðurinn stóra fjölskyldu og vinningsféð muni nýtast til endurbóta á eigin húsnæði auk stórra útgjaldaliða sem komi á næstunni, svo sem fermingar, tannréttinga og íþrótta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert