Fullt er út úr dyrum á framhaldsstofnfundi Framfarafélagsins sem hófst í Rúgbrauðsgerðinni klukkan 11. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og áður forsætisráðherra, boðaði stofnun félagsins. Á félagið að stuðla að framförum á öllum sviðum samfélagsins.
Frétt mbl.is: Sigmundur boðar stofnun nýs félags
Á fundinum eru að minnsta kosti tvö hundruð saman komnir; framsóknarmenn, fólk úr öðrum stjórnmálaflokkum og fólk sem ekki hefur haft formleg afskipti af stjórnmálum. Meðal þeirra sem eru á svæðinu eru Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur, sem var einn þeirra sem stóð að framboði flokksins Samstöðu, og Gústaf Níelsson, fyrrverandi oddviti Íslensku þjóðfylkingarinnar í Reykjavík.
Í viðtali við Morgunblaðið á dögunum sagði Sigmundur um félagið: „Það má líklega segja að þetta sé nokkurs konar sambland þjóðmálafélags og hugveitu og tilgangur þess er að skapa vettvang fyrir frjálsa umræðu fyrir hin ýmsu samfélagsmál, þar sem hægt verður að koma á framfæri hugmyndum og lausnum við þeim vandamálum sem samfélagið stendur frammi fyrir og hvernig við getum nýtt sem best þau tækifæri sem okkur bjóðast.“