Hlauparinn sem björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu hafa leitað að á og við Helgafell um tíu í kvöld er fundinn. Er hann heill á húfi en kaldur enda rigning og rok á svæðinu að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg.
Alls tóku um 100 manns þátt í leitinni, en leitað var gangandi, á fjórhjólum, reiðhjólum og með leitarhunda.
Maðurinn varð viðskila við félaga sinn um níuleytið í kvöld en þeir voru á Helgafelli ofan Hafnarfjarðar. Björgunarsveitir voru kallaðar til um tíuleytið og fundu manninn núna rétt fyrir miðnætti eins og fyrr sagði.