Fasteignaverð hækkar um 13,8%

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Heild­armat fast­eigna á Íslandi hækk­ar um 13,8% frá yf­ir­stand­andi ári og verður 7.288 millj­arðar króna. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Þjóðskrá Íslands en fast­eigna­mat henn­ar fyr­ir árið 2018 er birt í dag. Fast­eigna­matið hækk­ar á 98,3% eigna. 

Fast­eigna­mat íbúðar­hús­næðis á land­inu öllu hækk­ar um 15,5% sam­an­lagt en 9,1% í til­felli at­vinnu­hús­næðis. Hækk­un fast­eigna­mats at­vinnu­hús­næðis á höfuðborg­ar­svæðinu verður 10,6% en 5,7% á lands­byggðinni. Matsverð íbúða í sér­býli á höfuðborg­ar­svæðinu hækk­ar meira en íbúðir í fjöl­býli. Húsa­vík sker sig úr öðrum bæj­um en þar verður hækk­un­in 42,2%.

Heild­arfa­st­eigna­mat á höfuðborg­ar­svæðinu hækk­ar um 14,5% seg­ir í til­kynn­ing­unni, um 12,5% á Suður­nesj­um, um 14% á Vest­ur­landi, 8,6% á Vest­fjörðum, 12,2% á Norður­landi vestra, 12,4% á Norður­landi eystra, 6,4% á Aust­ur­landi og um 12,9% á Suður­landi.

Þá seg­ir að meðal­hækk­un á mati íbúðar­hús­næðis á höfuðborg­ar­svæðinu verði 16,5%. Svipaða hækk­un megi sjá í ná­granna­sveit­ar­fé­lög­um. Þannig hækki Reykja­nes­bær um 18,3-18,6%, Grinda­vík um 19,1%, Akra­nes um 18,8%, Hvera­gerði um 17,9% og Sel­foss um 17,5%.  

Nýtt fast­eigna­mat tek­ur gildi 31. des­em­ber á þessu ári og gild­ir fyr­ir árið 2018.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert