„Við höfum verið að fylgjast með þessu í rólegheitum og áttað okkur á því að þetta hafði tafist og myndi tefjast. Það var ýmislegt í kortunum sem benti til þess,“ segir Skúli Þórðarson, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar um áform fyrirtækisins Silicor Materials að hægja á uppbyggingu.
Hægja á undirbúningi sólarkísilvers á GrundartangaSillicor Materials tilkynnti í gær að hægt yrði á verkefnisþróunarvinnu og byggingaráformum verði seinkað. Helstu ástæður fyrir seinkuninni eru sagðar vera tafir á fjármögnun annars áfanga verkefnisins. Skúli segist ekki átta sig á því hvort af verði af áformunum þegar upp er staðið eða ekki.
„Eflaust er þetta þannig að það geti brugðið til beggja vona en ég veit ekki annað en að þeir séu að vinna að áformum sínum. En svona liggur þetta núna.“
Hann á von á því að fyrirtækið tilkynni sveitarstjórn ákvörðunina með einhverjum hætti á næstunni.
„Þetta er ekki afgreiðslumál hjá okkur en ég býst við að þeir muni kynna okkur þetta með formlegum hætti, eiga með okkur fund eða slíkt eða senda okkur upplýsingar.“
Þá segir hann að ákvörðun Silicor Materials hafi ekki áhrif á áætlanir sveitarfélagsins og að enginn marktækur kostnaður hafi fallið til af hálfu þess vegna verkefnisins.