„Ég setti fram þau sjónarmið mín að almenningur sé upplýstur um það ef það verða breytingar á vopnaburði lögreglu í tengslum við fjölskylduhátíðir. Að mínu viti er það ákveðin breyting á ásýnd lögreglunnar,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, um þau sjónarmið sem hún greindi frá á fundi Þjóðaröryggisráðinu fyrr í dag.
Hún greindi frá þessu undir liðnum hryðjuverkaógn. Aðspurð segir Katrín ekki geta greint frekar frá umræðunum sem fóru fram í kjölfarið, enda bundin trúnaði.
Katrín bendir á að það sé umhugsunarefni að þetta gerist á sama tíma og almenn löggæsla er undirfjármögnuð. „Hún [löggæslan] nær ekki að sinna þeim skyldum og kröfum sem við gerum til hennar,“ segir Katrín.
Hún kallar eftir opinni umræðu um vopnaburð lögreglunnar og að um þær upplýsingar ríki gagnsæi. Í því samhengi vísar hún til þess að Andrés Ingi Jónsson, fulltrúi Vinstri grænna í allsherjar- og menntamálanefnd, hefur óskað eftir fundi í nefndinni í þessari viku til að ræða þróun löggæslumála í ljósi frétta um aukinn vopnaburð lögreglu.