Íslenska ríkið braut ekki gegn tjáningarfrelsi Ólafs Arnarsonar þegar Héraðsdómur Reykjaness dæmdi hann til að greiða Friðriki J. Arngrímssyni, þáverandi framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna, 300.000 kr. í miskabætur í meiðyrðamáli árið 2012. Þetta er niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu.
Mannréttindadómstóllinn segir að héraðsdómur hafi ekki brotið gegn 10. grein laga um mannréttindasáttamála Evrópu sem varðar tjáningarfrelsi einstaklinga.
Málið snýst um færslu sem Ólafur, sem starfar í dag sem formaður Neytendasamtakanna, skrifaði á vefmiðilinn Pressuna í júlí árið 2010 undir yfirskriftinni „Getur Friðrik ekki betur?“. Þar hélt Ólafur því fram að LÍÚ, sem var þá undir stjórn Friðriks, bæri ábyrgð á „níðskrifum“ sem birt væri í skjóli nafnleyndar á vefsíðunni AMX og að LÍÚ styddi vefmiðilinn um 20 milljónir á ári í gegnum dulbúnar greiðslur. Ólafur hélt því fram að hann hefði hafi hann skrifað þetta í góðri trú en upplýsingarnar hefðu verið byggðar á frétt sem birtist í DV.
Friðrik höfðaði meiðyrðamál gegn Ólafi og hafði sigur, en dómurinn féll í lok nóvember 2012.
Ólafur áfrýjaði til Hæstaréttar sem synjaði honum. Þá skaut hann málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu sem segir meðal annars að Ólafur hafi ekki getað fært sönnur á sínum fullyrðingum. Ennfremur segir Mannréttindadómstóllinn dómur héraðsdóms hafi verið eðlilegur og bótahæðin hófleg.