Dæmdur kynferðisbrotamaður hefur fengið uppreist æru og þar af leiðandi fær hann lögmannsréttindi sín á nýjan leik. Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm héraðsdóms um að veita Roberti Downey, sem áður hét Róbert Árni Hreiðarsson, réttindin á ný. Maðurinn er á áttræðisaldri.
Fyrir níu árum var hann dæmdur í 3 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum. Brotin voru framin á árunum 2005 og 2006. Róbert tældi þrjár af stúlkunum með blekkingum og peningagreiðslum til kynferðismaka við sig, en þær voru þá 14 og 15 ára. Hann komst í samband við stúlkurnar í gegnum netið og í flestum tilvikum sagðist hann vera táningspiltur. Greiddi hann einni stúlkunni að minnsta kosti 32 þúsund krónur fyrir kynferðismök í tvö skipti, sem áttu sér stað í bifreið Róberts.
Í niðurstöðu héraðsdóms er vísað í dóm í máli lögmanns sem árið 1980 fékk lögmannsréttindi sín aftur þrátt fyrir að hafa þrettán árum áður verið dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir manndráp.
„Sóknaraðili hefur hlotið uppreist æru að því er snertir þann refsidóm sem var grundvöllur réttindasviptingarinnar. Að lögum hefur sóknaraðili þar með öðlast óflekkað mannorð að nýju. Að því virtu er það mat dómsins að ekki verði talið að sóknaraðili sé að svo komnu ekki verður þess að rækja starfann eða njóta réttindanna,“ segir í dómi héraðsdóms.