Landsmenn létu ekki rigningu aftra sér frá því að safnast saman á Austurvelli til að fagna þjóðhátíðardegi Íslands þar sem hátíðardagskrá hófst á tólfta tímanum að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, lagði blómsveig að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og Bjarni Benediktsson forsætisráðherra flutti ávarp.
Öryggissvæðið á Austurvelli er minna í ár en á síðasta ári og almenningur hefur þar með greiðara aðgengi að hátíðarsvæðinu. Þetta sagði Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Morgunblaðið í dag.
Fjölbreytt hátíðardagskrá er í boði um land allt.
Hér má hins vegar sjá dagskrá borgarinnar í dag í tengslum við hátíðarhöldin.