Rúmlega 146 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í maí síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 22.000 fleiri en í maí á síðasta ári. Fjölgunin nemur 17,8% milli ára. Fjölgunin í maímánuði var minni en aðra mánuði þessa árs, en hún hafði verið frá 44,4% upp í 75,3% eftir mánuðum.
Frá áramótum hafa um 752 þúsund erlendir ferðamenn farið úr landi um Keflavíkurflugvöll sem er 46,5% aukning miðað við sama tímabil árið á undan.
Bretum fækkar milli ára
Bandaríkjamenn voru 30% eða tæpur þriðjungur ferðamanna í maí og fjölgar verulega. Bretar komu þar næstir en athygli vekur að þeim fækkar talsvert á milli ára, eða um 28%. Annars var hlutfall tólf fjölmennustu þjóðernanna af heildarfjölda í maí sem hér segir:
Hlutfallsleg samsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2013. Bandaríkjamenn voru 29,1% af heild árið 2017 sem er mun hærra hlutfall en á árunum 2013-2016. Hlutdeild Breta var í kringum 27-29% á árunum 2013-2016 en fer niður í 21,8% árið 2017. Norðurlandabúar voru 8,1% af heild árið 2017 en hlutdeild þeirra hefur lækkað jafnt og þétt síðustu ár. Hlutdeild Mið-og S-Evrópubúa hefur verið svipuð á tímabilinu 2013-2017 en hefur hækkað hjá þeim sem falla undir annað.
Um 52 þúsund Íslendingar fóru utan í maí eða 17,8% fleiri en í maí 2016. Frá áramótum hafa um 227 þúsund Íslendingar farið utan eða 22,9% fleiri en á sama tímabili árið 2016.