Mennirnir tveir sem grunaðir eru um að hafa orðið Arnari Jónssyni Aspar að bana fyrir tveimur vikum í Mosfellsdal og hafa setið í gæsluvarðhaldi í 15 daga voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 21. júlí vegna almannahagsmuna.
Þetta var niðurstaða dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur í dag en Ævar Pálmi Pálmason lögreglufulltrúi staðfesti þetta í samtali við mbl.is. Mennirnir hafa báðir kært úrskurðinn til Hæstaréttar.
Mennirnir voru yfirheyrðir í gær en Ævar Pálmi sagði að ekki væri hægt að upplýsa hvað hefði komið fram í þeim yfirheyrslum.
Sex voru upphaflega handteknir en fjórum sleppt fyrir viku þar sem þeir eru ekki taldir hafa komið með beinum hætti að málinu.