Í dag skrifuðu Náttúruminjasafn Íslands og og Perla norðursins undir samning um að safnið fái aðstöðu til sýningarhalds í Perlunni. Fyrirhugað er að sýning Náttúruminjasafns Íslands opni á nýrri annarri hæð Perlunnar í tengslum við 100 ára afmæli fullveldis Íslands árið 2018.
Náttúruminjasafn Íslands er eitt þriggja höfuðsafna Íslands ásamt Listasafni Íslands og Þjóðminjasafni Íslands og heyrir undir mennta- og menningarmálaráðuneyti. Hlutverk þess er að varpa ljósi á náttúru Íslands, náttúrusögu landsins, nýtingu náttúruauðlinda og náttúruvernd, auk þess að varpa ljósi á samspil manns og náttúru og á náttúru landsins í alþjóðlegu samhengi.
Náttúruminjasafnið er afsprengi Hins íslenska náttúrufræðifélags sem stofnað var 16. júlí árið 1889, en bygging náttúrugripasafns í Reykjavík var eitt helsta markmið stofnenda félagsins. Er þetta skref í átt að því.
Undir samninginn skrifuðu Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands, og Agnes Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Perlu norðursins, að viðstöddum Kristjáni Þór Júlíussyni mennta- og menningarmálaráðherra.