Banaslys í Öxnadal

Ökumaður fólksbifreiðar lét lífið í umferðarslysi í Öxnadal sem tilkynnt var um klukkan 16.30 í dag. Hringveginum fyrir norðan var lokað um tíma vegna slyssins, sem varð þegar tvær fólksbifreiðar lentu saman.

Þrír voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri, þar sem annar ökumaðurinn var úrskurðaður látinn. Hinir tveir eru ekki taldir alvarlega slasaðir.

Frá þessu er greint á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert