Mest ánægja og óánægja með Bjarna

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er sá ráðherra sem mest ánægja og óánægja mælist með. Mikil óánægja var með frammistöðu ráðherra almennt, en sammerkt var með þeim öllum að fleiri voru óánægðir með frammistöðu þeirra en ánægðir. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu sem gerð var eftir þinglok.

Mest ánægja mældist með frammistöðu Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra en mesta óánægjan einnig. Slétt 28% Íslendinga voru ánægð með frammistöðu Bjarna en mun fleiri, eða rúmlega 50%, voru óánægð með frammistöðu hans. Um tveir þriðju hlutar stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar eru ánægð með frammistöðu Bjarna en aðeins um 3% þeirra sem styðja ekki ríkisstjórnina.

Flestir ánægðir með Bjarna en fæstir með Jón

Á eftir Bjarna eru Íslendingar ánægðastir með frammistöðu Bjartar Ólafsdóttur, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur en um 23% landsmanna voru ánægð með frammistöðu þeirra. Á hæla þeirra fylgja svo tveir ráðherrar Viðreisnar, þau Þorsteinn Víglundsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, en 19-21% voru ánægð með störf þeirra.

Fæstir eru ánægðir með störf Jóns Gunnarssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, eða einungis 9%. Milli 11 og 13% eru ánægð með frammistöðu Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra, Benedikts Jóhannessonar, fjármála- og efnahagsráðherra, Óttars Proppé heilbrigðisráðherra og Kristjáns Þórs Júlíussonar mentamálaráðherra, en ánægjan er minnst með frammistöðu þessara fimm ráðherra.

Stuðningur við ríkisstjórnina 35-36%

Á milli 64% og 65% Íslendinga styðja ekki núverandi ríkisstjórn Íslands en á bilinu 35% til 36% styðja hana. Stuðningurinn er mestur í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkurborgar en þar er hann tæplega 46%. Tekjuhærra fólk er líklegra til að styðja ríkisstjórnina en tekjulægri einstaklingar.

Nær allir kjósendur Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar styðja ríkisstjórnina en aðeins ríflega 40% kjósenda Bjartrar framtíðar styðja hana. Einungis 3% til 15% kjósenda annarra flokka styðja ríkisstjórnina.

Óttarr vinsælli hjá kjósendum annarra flokka

Allir ráðherrar njóta mestar hylli meðal kjósenda eigin flokks, utan ráðherra Bjartrar framtíðar. Þannig eru kjósendur Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar ánægðari með störf Óttars Proppé heldur en kjósendur Bjartrar framtíðar. Í tilfelli Bjartar Ólafsdóttur voru hins vegar of fá svör frá stuðningsmönnum flokksins til að slíkt væri marktækt. 

Svarendur voru 778 talsins og koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem er dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu. Svarendur eru af báðum kynjum, alls staðar að af landinu og á aldrinum 18-75 ára. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu samkvæmt Þjóðskrá. Könnunin fór fram dagana 1. til 13. júní 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka