Íslensku leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Ingvar E. Sigurðsson munu fara með hlutverk í nýrri Fantastic Beasts mynd sem framleidd verður af Warner Bros. Áætlað er að myndin komi út í nóvember 2018.
Mun Ingvar fara með hlutverk mannaveiðara að nafni Grimmson og Ólafur Darri fara með hlutverk Skender, eiganda töfrasirkuss. Þar slást þeir í hóp heimsfrægra leikara á borð við Eddie Redmayne, Johnny Depp, Colin Farrell, Zoe Kravitz, Jude Law og fleiri.
Greint er frá þessu á vef Pottermore. Þar kemur fram að tökur hafi hafist í dag.
Ólafur Darri deildi grein Buzzfeed um málið fyrr í dag á Facebooksíðu sína.
Þá sagðist hann jafnframt vera hæstánægður með að vera orðinn hluti af teyminu og það væri sérstaklega gaman að takast á við verkefnið með Ingvari.
Fyrirhugað er að Warner Bros muni gefa út alls fimm Fantastic Beasts myndir, en sú fyrsta kom út á síðasta ári. Myndirnar gerast á árunum 1926 til 1945, en sögusvið næstu myndar er New York, London og París.