Hönnun Lenu Margrétar Aradóttur á strætó varð hlutskörpust í hönnunarkeppni Strætó sem lauk á miðnætti. Vagn Lenu KÞBAVD fék 6.960 atkvæði á meðan hönnun Jakobs Guðnasonar fékk 6.783 atkvæði.
Vagnarnir tveir eru ólíkir þar sem vagn Jakobs vekur athygli á skátastarfi og skátamóti ársins á meðan vagn Lenu vekur athygli á femínisma, þá sérstaklega hugtakinu „KÞBAVD“ eða „kona þarf bara að vera dugleg að“.
„KÞBAVD er skammstöfun á frasanum „konur þurfa bara að vera duglegri“, sem samkvæmt höfundi er kaldhæðin ádeila í jafnréttisumræðunni. Skammstöfunin varð til í Facebook-hópum feminista.
Hönnunarkeppnin stóð yfir í rúman mánuð og naut hún mikilla vinsælda. Vefurinn var heimsóttur meira en 300.000 sinnum og um 1.700 hannanir voru sendar inn. Rúmlega 50.000 manns greiddu atkvæði í keppninni,“ segir í tilkynningu frá Strætó.