Grindhvalir sem voru reknir frá landi við Bug, austan við Ólafsvík á Snæfellsnesi, synda nú aftur á land við hafnargarðinn á Rifi. Björgunarsveitin Lífsbjörg hefur verið kölluð út á ný. Þetta staðfestir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Björgunarsveitinnar Landsbjargar.
Bátar Lífsbjargar eru nú að stugga hvölunum frá landi. Ekki er víst að ætlunarverk þeirra náist.
Nýlega voru hvalirnir hundrað reknir frá landi eftir að hafa verið í sjálfheldu við Bug, austan við Ólafsvík á Snæfellsnesi, síðan í morgun.