Margir hafa verið á ferðinni þessa júlíhelgi, enda margir í sumarfríi. Blaðamaður mbl.is segir að umferð í vesturátt sé þung á Suðurlandsvegi við Ingólfsfjall, á milli Selfoss og Hveragerðis. Þegar komið er á Sandskeið er umferðin enn þyngri.
Ljóst er að margir eru á leiðinni heim eftir ferðalag helgarinnar.
Ekki hafa borist upplýsingar um óhöpp en ökumenn eru hvattir til að aka varlega og virða hámarkshraða.