Settir hafa verið upp gjaldmælar á bílastæðinu við Seljalandsfoss. Landeigendur standa að baki verkefninu í samstarfi við Bergrisa.
Hefur staðið til að setja upp gjaldmæla á bílastæðinu í töluverðan tíma. Landeigendur hafa undanfarið staðið í mikilli uppbyggingu á svæðinu í kjölfar fjölgunar ferðamanna.
Kaupa þau búnaðinn af Bergrisa sem hefur meðal annars útvegað búnað við Sólheimajökul og Reynisfjöru. Gjaldmælirinn líkist stuðlabergi í útliti en með því á hann að falla betur inn í umhverfið.
Þórólfur Gunnarsson hjá Bergrisa segir að mælirinn hafi aðeins verið settur upp í gær og fyrradag og má búast við að hann verði tekinn í notkun fljótlega.