Fangi slapp úr fangelsinu á Akureyri í kvöld en lögregla hafði handtekið hann aftur um það bil klukkutíma eftir að hann slapp. Ríkisútvarpið greinir frá þessu og lögreglan á Akureyri staðfestir að fanginn hefði verið handtekinn en vísar á Fangelsismálastofnun um frekari upplýsingar.
Frétt Ríkisútvarpsins um málið.