„Þetta er allt að smella. Það eru rosa margir búnir að koma saman núna og bjóða fram hitt og þetta,“ segir Guðmundur Karl Karlsson, einn skipuleggjenda afmælisveislu afganskrar flóttastúlku, sem haldin verður á Klambratúni á morgun.
Hundruð manna hafa lýst yfir áhuga sínum á því að mæta í 12 ára afmæli Hanyie Maleki, 11 ára stelpu frá Afganistan sem dreymir um að halda afmælið sitt hér á Íslandi. Hanyie á afmæli í október en sökum þess að til stendur að senda hana og föður hennar úr landi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, var ákveðið að blása til afmælisveislu á Klambratúni á morgun.
„Hún er alveg hrikalega spennt,“ segir Guðmundur, spurður hvort Hanyei hlakki til veislunnar á morgun. „Ég er ekkert viss um að hún geri sér grein fyrir því nákvæmlega hversu stórt þetta er orðið.“
Guðmundur Karl segir hjálparhönd hafa borist úr öllum áttum, bæði hafi listamenn boðist til að troða upp í veislunni og ýmsir aðrir lagt til hitt og þetta til að gera veisluna að veruleika. Nú sé hér um bil allt til reiðu og hafist verður handa við að skreyta tímanlega á morgun en veislan sjálf hefst klukkan 16:00. Þar mun söngkonan Þórunn Antonía m.a. taka lagið og leiða afmælissönginn auk þess sem Húlladúllan mun kenna viðstöddum að leika listir sínar með húllahring en nánari upplýsingar um veisluna má finna á Facebook-viðburði.
Guðmundur er sjálfboðaliði hjá Solaris, hjálparsamtökum fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, en samtökin standa fyrir undirskriftasöfnun þar sem þrýst er á Útlendingastofnun um að endurskoða mál feðginanna. Að sögn Guðmundar gengur undirskriftasöfnunin vel en þegar hann síðast athugaði í morgun höfðu tæplega 4.000 manns skrifað undir áskorunina.
„Vonandi sjá þau [hjá Útlendingastofnun] að þetta fólk á bara fullt erindi hérna í samfélagið okkar og sjái sér fært að taka málið fyrir. Það er allt sem við erum að biðja um, við erum bara að biðja um að taka málið fyrir, þeir hafa aldrei opnað málið þeirra,“ segir Guðmundur. „Það er bara sorglegt að þeir ganga framhjá barnasáttmálanum með því að þeir hlusta ekki á börnin.“
Þá hefur verið stofnaður söfnunarreikningur í nafni Guðmundar þar sem hægt er að leggja inn aur í afmælisgjöf fyrir Hanyie. Ekki var mögulegt að stofna reikning í hennar eigin nafni og heldur Guðmundur því utan um reikninginn.
Að hans sögn hefur söfnunin gengið vel en hann hyggst greina frá því í veislunni á morgun hversu miklu hefur verið safnað að Hanyie viðstaddri. „Það eru rosalega margir búnir að gefa smátt sem er að gera eitt stórt,“ segir Guðmundur.
Þeir sem vilja gefa Hanyie afmælisgjöf geta lagt inn á reikning: 0513-14-406615 á kennitölu 091082-5359.