Mennirnir af bátnum frjálsir ferða sinna

Báturinn sökk undan Vogastapa og komust mennirnir sjálfir að landi. …
Báturinn sökk undan Vogastapa og komust mennirnir sjálfir að landi. Þeir voru engu að síður fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús til aðhlynningar. mbl.is/Sigurður Bogi

Búið er að yfirheyra mennina tvo sem voru um borð í skemmtibáti sem sökk undan Vogastapa í gærkvöldi, á milli Voga og Njarðvíkur. Þeir eru nú frjálsir ferða sinna og mun mál þeirra fara sína leið í réttarkerfinu. Þetta segir Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum í samtali við mbl.is. Samkvæmt heimildum mbl.is má ætla að mennirnir hafi verið drukknir um borð í bátnum.

Báturinn er enn á þeim stað sem hann sökk, en væntanlega verður ekki hægt að fjarlægja hann fyrr en tryggingafélög hafa unnið sína vinna í tengslum við málið.

Land­helg­is­gæsl­an fékk viðvörðun laust fyr­ir klukk­an níu í gær­kvöldi eft­ir að bát­ur­inn hætti að senda frá sér merki.

Á sama tíma voru sjó­björg­un­ar­sveit­ir frá Suður­nesj­um á æf­ingu norður af Vog­astapa. Þær voru kallaðar til og komu að bát sem maraði í kafi. Eng­inn var sjá­an­leg­ur ná­lægt hon­um. Skömmu síðar komu þeir hins veg­ar auga á tvo menn sem höfðu náð að kom­ast í land.

Ein af þyrl­um Land­helg­is­gæsl­unn­ar var kölluð út. Hún kom á svæðið, tók menn­ina um borð og flutti þá á sjúkra­hús til aðhlynn­ing­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert