„Við sjáum þetta ekki þjóna okkar hagsmunum,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga, um þá ákvörðun smásölurisans að taka ekki lengur þátt í íslensku smásöluvísitölunni. Greint var frá því í Morgunblaðinu í dag að félagið hefði tilkynnt Rannsóknarsetri verslunarinnar um þessa ákvörðun.
Frétt mbl.is: Hagar út úr smásöluvísitölunni
„Við erum að birta upplýsingar einir á markaði fjórum sinnum á ári og erum í rafrænum samskiptum við Hagstofuna og teljum það nóg,“ segir Finnur, en skylda félagsins er að birta fjórum sinnum á ári upplýsingar um rekstur og afkomu.
„Ég tel okkur vera að sinna skyldum okkar að fullu,“ bætir hann við.
Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í dag er grundvöllur smásöluvísitölunnar með þessu brostinn. Henni var ýtt úr vör árið 2002 og hafa greiningardeildir bankanna, Seðlabankinn, Hagstofan og fleiri aðilar á markaði notað hana í greiningu sinni. Hún sýnir breytingar á veltu í smásöluverslun.