Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur sveimað yfir sunnanverðu Kársnesi í Kópavogi undanfarið með ljóskastara. Samkvæmt heimildum mbl.is fer þar fram leit að einstaklingi.
Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar taka einnig þátt í leitinni.
Notast þær meðal annars við báta.
Uppfært: Einstaklingurinn sem leitað var að er fundinn heill á húfi.