Um 50-70 manns munu taka þátt í hreinsunarstörfum við Úlfljótsvatn um helgina. Í dag verða þrifin undirbúin og munu þau hefjast á morgun. Gert er ráð fyrir að þeim ljúki einhvern tímann á sunnudag. Þá verður allt sótthreinsað sem gæti hafa verið snert, sameiginlegar vistarverur vel þrifnar og rúmföt og fatnaður soðinn.
Skátabúðirnar verða hreinsaðar í kjölfar þess að skæð magakveisa kom þar upp í gærkvöldi, sem er að öllum líkindum sökum nóró-veirunnar. 181 skáti og 15 starfsmenn búðanna hafast nú við í fjöldahjálparstöð sem komið var upp í grunnskólanum í Hveragerði. Þá var tekin ákvörðun um að svæðið í kringum skátabúðirnar og vatnið verði lokað yfir helgina.
Sýnatöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands er lokið á svæðinu en nú verða sýnin send til greiningar í Reykjavík. Niðurstöður úr þeim koma þó ekki fyrr en eftir helgi í fyrsta lagi, að sögn Hermanns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Bandalags íslenskra skáta. Auk rannsóknanna gerði heilbrigðisstofnunin mat á svæðinu en þar kom fram að öruggt væri að hefja þrif.
Samkvæmt upplýsingum frá Páli Sigurðssyni, úr stjórn skátabúðanna við Úlfljótsvatn, mun tjaldsvæði skátanna, sem nú er í sóttkví, ekki vera innifalið í þrifunum, heldur munu þeir sjálfir sjá um að þrífa það og ganga frá.
Fyllstu varúðar verður gætt og þá munu starfsmenn og sjálfboðaliðar meðal annars ganga með hanska.