Bílvelta á Reykjanesbraut

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Bílvelta varð á Reykjanesbrautinni á þriðja tímanum í dag. Bíllinn var á leið úr Reykjanesbæ til Reykjavíkur þegar veltan varð í Hvassahrauni, á vegarkaflanum skömmu áður en vegurinn verður einfaldur.

Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu snerist bíllinn á hvolf, en hélst þó inni á veginum. Fjórir voru í bílnum og voru þeir allir fluttir á Landspítalann til skoðunar. Talið var þó að meiðsl þeirra væru minni háttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert