Dánarorsök liggur enn ekki fyrir í máli kanadamannsins David Frederik McCord, betur þekktur sem Grampa Dave, sem lést í Reynisfjöru á sunnudagskvöld er hann féll til jarðar með svifvæng.
Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Selfossi, segir lögreglu hafa tekið skýrslu af fjölda fólks sem var í fjörunni þegar McCord féll þar niður. Ekki standi hins vegar til að taka skýrslu af öllum þeim 400 sem þar voru staddir er atvikið átti sér stað.
Hann segir ekkert í veðri útskýra að svifvængurinn félli niður og því bíði lögregla nú niðurstöðu krufningar og rannsóknar á svifvængjabúnaðinum, en tæknideild lögreglu mun skoða búnaðinn með aðstoð sérfróðra manna.
Grampa Dave var mikill áhugamaður um svifvængjaflug og í ítarlegu viðtali við Sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins í byrjun júlí sagði hann íþróttina hafa breytt lífi sínu.