Margs konar sjónarmið eru innan stjórnmálaflokkanna um fiskeldi og fara ekki endilega eftir flokkslínum.
Þetta segir Páll Magnússon, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, í umfjöllun um fiskeldismál í Morgunblaðinu í dag.
„Ég geri ráð fyrir að þetta verði með viðkvæmari og erfiðari málum sem Alþingi fær til úrlausnar á haustþingi,“ sagði Páll.