„Tilefnið er einfaldlega hin harðnandi og mikla samkeppni sem íslenskan á í og er að glíma við um þessar mundir og birtist meðal annars í stöðu bókaútgáfunnar sem útgefendur hafa nú kynnt.“
Þetta segir Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, í Morgunblaðinu í dag um bága stöðu bókaútgáfu á Íslandi og starfshóp sem hann hyggst skipa til að skoða stöðuna. Eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær hefur bóksala á Íslandi dregist mjög saman síðustu ár.
Kristján segir ekki frágengið hverjir muni skipa hópinn, en þar verða fulltrúar frá bókaútgefendum, Rithöfundasambandinu, Hagþenki, Miðstöð íslenskra bókmennta, mennta- og menningarmálaráðuneytinu og fjármála- og efnahagsráðuneytinu.