Fyrstu göngur í Eyjafjarðarsveit verða laugardaginn og sunnudaginn 2. og 3. september og helgina á eftir, 9. og 10. september.
Aðrar göngur verða 16. til 17. september og 23. og 24. september.
Hrossasmölun verður föstudaginn 6. október og stóðréttir daginn eftir.
Þetta kemur fram á vefsíðu Eyjafjarðarsveitar. Gangnaseðlar verða sendir út á næstunni og birtir á síðunni.
Réttardagar verða einnig haldnir í byrjun september. Fyrstu fjárréttirnar verða í Hraungerðisrétt 2. september og Möðruvallarétt, Þverárrétt og Vatnsendarétt 3. september. Sunnudaginn 10. september verða réttir í Vallarétt.