Baldur Guðmundsson
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir Sveini Gesti Tryggvasyni. Honum er gefið að sök að hafa banað Arnari Jónssyni Aspar í Mosfellsdal í júní.
Sveinn hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan 8. júní. Hann kærði úrskurðinn til Hæstaréttar en hafði ekki erindi sem erfiði. Sveinn sætir nú gæsluvarðhaldi til 31. ágúst.