Talið er að umframkostnaður við Norðfjarðargöng verði um það bil einn milljarður og umframkostnaður við göng við Bakka um 470 milljónir.
Þetta kemur fram á vef RÚV en þar svarar Vegagerðin fyrirspurn fréttastofunnar. Enn fremur kemur fram að helsta ástæða umframkostnaður sé vegna verðbóta til verktaka og aukinna öryggiskrafna í Norðfjarðargöngum og vegna leka í göngum á Bakka.
Eins og áður hefur komið fram er ljóst að einhver töf verður á opnun Norðfjarðarganga en nú stendur til að opna þau í október. Göngin leysa af veginn um Oddsskarð, sem hæst stendur í um 600 metra hæð og getur verið mikill farartálmi. Framkvæmdir við göngin hafa staðið yfir frá 2013.
Heildarkostnaður við Norðfjarðargöng verður því 14,3 milljarðar í stað 13,3 og heildarkostnaður við Bakka verða 3570 milljónir í stað 3100 milljóna. Umframkostnaður er ekki inni í fjárveitingum til framkvæmda að sögn Vegagerðar.